Search

    Aftur til fortíðar

    Listamaður Vikuna 16. - 23. janúar, 2021 Katrín V. Karlsdóttir (Kvalka) er með örsýninguna "Aftur til fortíðar" í glugganum á galleríinu að Skólavörðustíg 5, Reykjavík. 

    Það getur verið hollt að horfa til baka, athuga hvort hægt er að taka upp gamla þræði og búa til eitthvað nýtt úr þeim. Það er tilgangurinn með þessari sýningu. Draga fram verk sem legið hafa í dvala, hugmyndir sem ekki hafa verið þróaðar áfram. Það getur leynst fjársóður í gömlum pælingum sem teknar eru fram og viðraðar. En það mun aðeins framtíðin leiða í ljós. 

    -:-

    In the week January 16th - 23th ,2021 Katrin V. Karlsdottir has a mini exhibition "Back to the past"  in the window of the gallery at Skolavordustig 5, Reykjavik, Iceland. 

    Looking back can be good. To take up old threads and make something new with them. The purpose of this exhibition is exactly that. Showcasing old work that's been kept on the shelf and not developed further. Treasures can be found in old ideas when looked up on again, it's for the future to find out. 

     

    Maddömur með börnin sín. Vasar, kertastjakar, glös. Allt í senn. 

    -:-

    Ladies with there children. Vases, candleholder, glasses. All in one piece. 

    Maddama með tvö börn      Maddama með eitt barn

    Furðufiskar

    -:-

    Strange fishes

          

    Olíulampar                                                 Duftker
    -:-                                                                -:-
    Oil lamps                                                    Urn                               
         
    -:-

    My name is Katrin Valgerdur Karlsdottir and Kvalka ceramic studio is my workplace. "Kvalka" is my artistic name, made from the first few letters of each of my names. My studio is located in my home in Kopavogur, Iceland. I'm the only one working there, doing all the work myself and enjoying it. I graduated from the Iceland Academy of the Arts in 2001 and was by then already turning forty. I took my time to get to the place where I belong, experienced a lot on the way, and have more to explore. My pieces of art are one of a kind. Formed in my hands with great care and joy as a counterbalance to all the mass production in the world. I like it when "things" happen while I'm creating. Then a new idea can be born. I use live fire to burn most of my work. It is a constant battle for survival or destruction. But when there is a victory the result can be an astonishing beautiful tribute to life with all its colors.

    Ég er Katrín Valgerður Karlsdóttir og Kvalka ceramic studio er vinnustofan mín staðsett heima hjá mér í Kópavogi. Listamanna nafnið mitt “Kvalka” er smíðað úr nokkrum fyrstu stöfunum í nöfnunum mínum. Ég lærði leirlist í Listaháskóla Íslands eftir að hafa náð nokkrum þroska í aldri því áður hafði ég útskrifast úr Kennaraháskóla Íslands sem smíðakennari og kenndi meðal annars útskurð í mörg ár. Það má glöggt sjá áhrif frá þeim tíma í sumum verkum mínum. En annars bera verkin mín merki tilraunastarfsemi og nýjungagirni þar sem eitt tekur við af öðru og tek ég því fagnandi þegar eitthvað óvænt gerist í sköpunarferlinu, þá verða nýjar hugmyndir til. Hvert verk er einstakt, formað í höndunum og búið til með alúð og ánægju sem mótvægi við fjöldaframleiðslu. Ég sérhæfi mig í að brenna í lifandi eldi. Það getur verið áhættusamt fyrir leirinn, hann sprungið í hitamismuninum og brotnað í hreyfingunum sem verða þegar eldsmaturinn brennur. Brennsluferlinu get ég ekki alfarið stjórnað. Náttúruöflin taka þátt í sköpuninni og þegar vel tekst til getur útkoman orðið stórkostlegur óður til alheimsins.