Search

    Privacy policy

    PERSÓNUVERNDAR STEFNA

    Listamannafélagið Kaolin er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem félagið meðhöndlar. Í persónuverndarstefnu Listamannafélagsins Kaolins kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að viðskiptavinir, samstarfsaðilar og aðrir einstaklingar, séu upplýstir um hvernig félagið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
    Listamannafélagið Kaolin, kt. 6411100270, Skólavörðustíg 5, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru félaginu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til félagsins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið kaolin@kaolin.is.
    Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar um hinn skráða, þ.e. upplýsingar sem beint eða óbeint má rekja til tiltekins einstaklings, samkvæmt skilgreiningu persónuverndarlaga. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
    Um meðferð Listamannafélagsins Kaolins á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma hér á landi.

    Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

    Listamannafélagið Kaolin safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi. Markmiðið með upplýsingasöfnun er fyrst og fremst til þess að þjónusta viðskiptavini betur og aðlaga og bæta upplifun þeirra af þjónustu Listamannafélagsins Kaolins.
    Listamannafélagið Kaolin safnar einungis persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita viðeigandi þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er möguleiki á að Listamannafélagið Kaolin geti ekki útvegað viðkomandi aðila vörur eða veitt þjónustu.
    Listamannafélagið Kaolin nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma.

    Viðskipti einstaklinga

    Listamannafélagið Kaolin safnar upplýsingum um viðskiptavini sína í tengslum við einstök viðskipti. Þannig safnar Listamannafélagið Kaolin m.a. samskiptaupplýsingum viðskiptavina, upplýsingum um þá vöru og/eða þjónustu sem keypt er, t.d. vörunúmer og verð.
    Gerist viðskiptavinur brotlegur kann að vera unnið með upplýsingar um brot á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins. Þá kunna brot að vera tilkynnt til lögreglu.

    Póstlisti

    Listamannafélagið Kaolin vinnur með tölvupóstfang, sem einstaklingur hefur skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til einstaklinga á póstlista félagsins. Enn fremur getur einstaklingur skráð upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er óskað eftir samþykki til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu Listamannafélagið Kaolin í því skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu Listamannafélagsins Kaolins. Með skráningu þessara valkvæðu upplýsinga samþykkir einstaklingur að Listamannafélagið Kaolin megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum félagsins, s.s. sölukerfi og CRM-kerfi (e. Customer relationship management), til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðaðri skilaboð.
    Þessi vinnsla byggir á samþykki og er einstaklingi alltaf heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykki sitt og afskrá sig af póstlista félagsins með því að ýta á þar til gerðan hlekk í markpóstum, senda póst á netfangið kaolin@kaolin.is.

    Forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana

    Komi einstaklingur fram fyrir hönd samstarfsaðila Listamannafélagsins Kaolins, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er lögaðili, kann Listamannafélagið Kaolin að vinna með tengiliða upplýsingar hans, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann Listamannafélagið Kaolin að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er félaginu nauðsynleg til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá kann félaginu að vera skylt að vinna með slíkar upplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. bókhaldslaga.

    Ábendingar og/eða athugasemdir frá viðskiptavinum

    Ef einstaklingur sendir inn ábendingu eða kvörtun mun Listamannafélagið Kaolin almennt vinna með samskiptaupplýsingar hans, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem hann hefur kosið að koma á framfæri. Upplýsingar eru geymdar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu.

    Miðlun persónuupplýsinga

    Listamannafélagið Kaolin nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar í. Listamannafélagið Kaolin miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að fengnu samþykki, í samræmi við ákvæði viðskiptasamninga, á grundvelli lögmætra hagsmuna félagsins eða á grundvelli lagaskyldu.
    Listamannafélagið Kaolin áskilur sér rétt til að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila) sem er þjónustuveitandi, umboðsmaður eða verktaki Listamannafélagsins Kaolins í þeim tilgangi að veita þjónustu sem beðið hefur verið um.
    Listamannafélagið Kaolin deilir upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með félaginu við gæða- og markaðsstarf. Listamannafélagið Kaolin afhendir vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá í framangreindum tilgangi og gerður er við þá samningur þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um einstaklinga öruggum og nota þær einungis í framangreindum tilgangi.
    Allir vinnsluaðilar Listamannafélagsins Kaolins og samstarfsaðilar hafa undirritað viðeigandi trúnaðaryfirlýsingu og vinnslusamning í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga. Listamannafélagið Kaolin tryggir þannig vernd persónuupplýsinga í samræmi við lög og reglur um persónuvernd eins og þau eru á hverjum tíma. Þar á meðal með mótun öryggisstefnu um meðferð og öryggi persónuupplýsinga og setningu öryggis- og verklagsreglna eins og krafist er í persónuverndarlögum.
    Í þeim tilfellum þegar þriðji aðili (vinnsluaðili) fær aðgang að persónuupplýsingum, tryggir Listamannafélagið Kaolin trúnað og að gögnum sé eytt að vinnslu lokinni. Listamannafélagið Kaolin leigir aldrei eða selur persónuupplýsingar um viðskiptavini.

    Öryggi gagna

    Listamannafélagið Kaolin leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta, að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
    Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra. Breytingar og leiðréttingar á persónuupplýsingum
    Öll samskipti við vefþjóna Listamannafélagið Kaolin eru dulkóðuð yfir öruggar vefslóðir (HTTPS).

    Réttindi þín

    Einstaklingur á rétt á og getur óskað eftir að Listamannafélagið Kaolin veiti honum upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem félagið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um hann. Þá kann einnig að vera að einstaklingur hafi rétt á að fá afrit af upplýsingunum. Við ákveðnar aðstæður getur einstaklingur farið fram á það við félagið að við sendum upplýsingar, sem hann hefur sjálfur látið okkur í té eða stafa frá honum, beint til þriðja aðila.
    Einstaklingur á rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um hann séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað.
    Vilji einstaklingur ekki láta eyða upplýsingum sínum, t.d. vegna þess að hann þarf á þeim að halda til að verjast kröfu, en vill samt sem áður að þær séu ekki unnar frekar af hálfu félagsins getur hann óskað eftir því að vinnsla þeirra verði takmörkuð.
    Sé vinnsla á persónuupplýsingum einstaklings byggð á lögmætum hagsmunum félagsins á hann einnig rétt á að mótmæla þeirri vinnslu.
    Framangreind réttindi einstaklingsins eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög að skylda félagið til að hafna ósk um eyðingu eða aðgang að gögnum. Þá getur félagið hafnað beiðni hans vegna réttinda félagsins, s.s. á grundvelli hugverkaréttar, eða réttinda annarra aðila, s.s. til friðhelgi einkalífs, telji félagið þau réttindi vega þyngra. Réttindi þín til að mótmæla vinnslu í markaðssetningar tilgangi er þó skilyrðislaus.
    Einstaklingi verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verðavið beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Einstaklingur getur kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is) ef Listamannafélagið Kaolin neitar að afhenda honum ákveðnar upplýsingar eða ef einstaklingur er ósáttur við vinnslu Listamannafélagsins Kaolins á persónuupplýsingum.
    Ef upp koma aðstæður þar sem að félagið getur ekki orðið við beiðni einstaklings mun félagið leitast við að útskýra hvers vegna beiðninni hefur verið hafnað, þó með tilliti til takmarkana á grundvelli lagaskyldu.

    Vafrakökur (e. cookies)

    "Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Listamannafélagið Kaolin notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
    Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Listamannafélagið Kaolin vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.
    Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Listamannafélagsins Kaolins. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.
    Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Listamannafélagsins Kaolins, þar á meðal verslunarkerfið.
    Listamannafélagið Kaolin notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Listamannafélaginu Kaolin, t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Listamannafélagið Kaolin notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur en Listamannafélagið Kaolin áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og klúbbmeðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixel. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
    Með því að nota vefverslun Listamannafélags Kaolins samþykkir neytandi að Listamannafélagið Kaolin  safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
    Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á
    http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Listamannafélags Kaolins gætu takmarkast við slíkar breytingar.

    Endurskoðun stefnu

    Persónuverndarstefna Listamannafélagsins Kaolins er endurskoðuð reglulega og stefna félagsins er að vera eins skýrt og berort um hvernig félagið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar.
    Listamannafélagið Kaolin áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara.
    Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu Listamannafélagsins Kaolins skal senda á netfangið kaolin@kaolin.is eða í síma 5552060.
    Þessi persónuverndarstefna var sett þann 25.09.20

     

    -:-


    Privacy & Cookie Policy

    Privacy Policy

    Kaolin uses your personal information only for providing and improving www.kaolin.is. By using the website, you agree to the collection and use of information in accordance with this policy.
    We may ask you to provide us with certain personally identifiable information that can be used to contact or identify you. We collect information such as your name, e-mail, postal address, and credit card numbers when you place an order. We use your information collected online to process and fulfill your order.
    By providing us with your email address we may also contact you with marketing and promotional materials and other information that may be of interest to you. You can unsubscribe at all times from this material.
    We are committed to ensuring that your information is secure. In order to prevent unauthorized access or disclosure, we have put in place suitable physical, electronic, and managerial procedures to safeguard and secure the information we collect online.
    Any information given by the customer in connection with a sale is fully confidential. No information will under any circumstances be passed on to a third party.

    How to contact Kaolin?

    The data controller responsible for your personal information for the purposes of the applicable European Union data protection law is:

    Listamannafélagið Kaolin
    Skólavörðustígur 5,
    101 Reykjavík,
    Iceland.
    Telephone: +354 555 2060
    Email: kaolin@kaolin.is


    If you have any questions about this Privacy Notice or our data collection practices, please contact us at the address, telephone number, or email listed above and specify your country of residence and the nature of your question.
    You have the right to raise any issues or concerns directly to kaolin@kaolin.is.
    The right to erasure - you have the right to request that we delete your data. We will do so, provided that we do not have a compelling reason for keeping it. To request this, please email kaolin@kaolin.is

    Cookie Policy

    Kaolin uses cookies on www.kaolin.is. By using our website, you consent to the use of cookies. We use cookies to customize your experience. Our Cookie Policy explains what cookies are, how we use cookies, and what cookies we use, how third-parties we partner with may use cookies and your choices regarding cookies.
    General About Cookies
    Cookies are small pieces of text sent by your web browser or the browser on your mobile phone by a website you visit. A cookie file is stored in your web browser and allows the website or a third-party to recognize you and make your next visit easier and the website more useful to you.
    How does Kaolin use Cookies?
    When you access and use our website, we may place some cookie files in your web browser. We use cookies for the following purposes: to enable certain functions of the site, to provide analytics, and to store your preferences.
    We use traffic log cookies to identify which pages are being used. This helps us analyze data about web page traffic and improve our website in order to tailor it to customer needs. We only use this information for statistical analysis purposes and then the data is removed from the system.
    We use analytics cookies to help us make our website better for those who visit it regularly. They help us work out what users like and don’t like, as well as ways we can improve the website and its content. Please note that our cookies do not store your personal information, such as your name, address, telephone, or email.

    Third-party Cookies

    In addition to our own cookies, we may also use various third-parties’ cookies to report usage statistics of the site.

    Managing Cookies

    If you’d like to delete cookies or instruct your web browser to delete or refuse cookies, please visit the help pages of your web browser.
    However, if you delete cookies or refuse to accept them, you might not be able to use all of the features we offer, you may not be able to store your preferences, and some of our pages might not display properly.
    More detail on how businesses use cookies is available at http://www.allaboutcookies.org.